Síðast uppfært: 8. október 2026
Útgáfa: terms-2026-10
Þessir skilmálar gilda um kaup einstaklinga á fjarþjálfun hjá Þjálfun.is.
Seljandi er Kristján Jónsson, sem rekur þjónustuna undir nafninu Þjálfun.is.
Skilmálarnir skerða ekki ófrávíkjanleg réttindi neytenda samkvæmt íslenskum lögum.
Fyrir kaup á þjónustu fyrir einstakling yngri en 18 ára skal hafa samband við Þjálfun.is. Samþykki forráðamanns þarf að liggja fyrir um þjónustuna og greiðslufyrirkomulagið.
Þjálfun.is veitir einstaklingsmiðaða fjarþjálfun. Þjónustan felur í sér gerð þjálfunaráætlunar út frá markmiðum þínum, aðstæðum og upplýsingum sem þú veitir, ásamt eftirfylgni og aðlögun áætlunarinnar á samningstímanum.
Þú færð aðgang að áætluninni, æfingaleiðbeiningum og viðeigandi þjálfunarefni í appi Þjálfun.is. Samskipti við þjálfara fara fram um þær samskiptaleiðir sem kynntar eru við kaup, meðal annars með tölvupósti. Fyrirspurnum er svarað innan sanngjarns tíma á virkum dögum.
Áður en kaup eru staðfest færðu upplýsingar um umfang þjónustunnar og afhendingardag eða afhendingarfrest fyrstu áætlunar. Þjálfari hefur samband ef fyrirsjáanlegt er að afhending tefjist og fer yfir framhaldið með þér. Það skerðir ekki réttindi þín vegna afhendingardráttar.
Til að nota appið þarftu nettengingu og tæki með vafra sem styður þjónustuna. Upplýsingar um sérstakar tæknilegar kröfur eða takmarkanir eru veittar fyrir kaup ef þær eiga við.
Þjónustan felur ekki í sér læknisráðgjöf, sjúkdómsgreiningu eða læknismeðferð. Ákveðinn þjálfunarárangur er ekki tryggður; hann ræðst meðal annars af aðstæðum, heilsufari og þátttöku hvers einstaklings.
Áður en þú staðfestir kaup færðu að sjá hvaða þjónusta er keypt, lengd tímabilsins, mánaðarverð og heildarverð samningsins.
Við kaupin staðfestir þú sérstaklega að pöntunin hafi greiðsluskyldu í för með sér. Almenn fyrirspurn eða beiðni um upplýsingar felur ekki ein og sér í sér kaup.
Við staðfestingu kaupanna er eftirfarandi samþykki veitt með því að haka í óútfylltan reit:
„Ég samþykki skilmálana og óska eftir að þjónustan hefjist strax“.
Með þessari beiðni óskar þú eftir að þjálfari megi hefja undirbúning og vinnu við áætlunina áður en 14 daga fráfallsfresturinn er liðinn. Hún felur ekki í sér að þú afsalir þér fráfallsréttinum. Ef þú fellur frá samningi innan frestsins getur greiðsla fyrir þegar veitta þjónustu komið til samkvæmt kafla 7.
Þú færð staðfestingu kaupanna með tölvupósti áður en veiting þjónustunnar hefst. Með henni fylgja samningsupplýsingar, þessir skilmálar, upplýsingar um fráfallsrétt og eyðublað til að nýta hann. Þar kemur fram dagsetning samningsgerðar og beiðni þín um tafarlausa byrjun.
Verð þjónustunnar er:
| Tímabil | Mánaðarverð | Heildarverð |
|---|---|---|
| Stakur mánuður | 17.900 kr. | 17.900 kr. |
| Þrír mánuðir | 15.900 kr. | 47.700 kr. |
| Án mælingar · Stakur mánuður | 14.900 kr. | 14.900 kr. |
| Án mælingar · Þrír mánuðir | 12.900 kr. | 38.700 kr. |
Verðin eru í íslenskum krónum og eru endanleg neytendaverð. Seljandi er ekki á virðisaukaskattsskrá og enginn virðisaukaskattur leggst við. Venjulegur kostnaður Þjálfun.is við stofnun og greiðslu krafna er innifalinn.
Greitt er með kröfu í heimabanka sem stofnuð er á kennitölu kaupanda. Fyrsta krafan er send þegar þjálfunaráætlunin þín er tilbúin til notkunar í appinu og þú hefur fengið tilkynningu um það.
Fyrir stakan mánuð er send ein krafa að fjárhæð 17.900 kr. Fyrir þriggja mánaða tímabil eru sendar þrjár mánaðarlegar kröfur, hver að fjárhæð 15.900 kr. Fyrir stakan mánuð án mælingar er send ein krafa að fjárhæð 14.900 kr. Fyrir þriggja mánaða tímabil án mælingar eru sendar þrjár mánaðarlegar kröfur, hver að fjárhæð 12.900 kr. Gjalddagi kemur fram á hverri kröfu.
Sé krafa ógreidd eftir gjalddaga getur þjónustan farið í bið. Þjálfari hefur alltaf samband við þig áður en það gerist og fer yfir stöðuna og leiðir til úrlausnar. Bið felur ekki sjálfkrafa í sér nýtt samningstímabil eða samþykki fyrir framhaldi þjónustunnar.
Réttur þinn til að andmæla kröfu, falla frá samningi eða bera fyrir þig vanefndir helst óbreyttur.
Keypt tímabil miðast við einn eða þrjá heila þjónustumánuði. Tímabilið hefst daginn sem þú færð tilkynninguna „Allt er tilbúið“ um að áætlunin sé tilbúin til notkunar í appinu.
Undirbúningur áætlunar getur hafist fyrr samkvæmt beiðni þinni um tafarlausa byrjun. Það breytir ekki upphafi keypta þjálfunartímabilsins.
Stakur mánuður
Engin binding er umfram þann eina mánuð sem þú kaupir. Þjónustunni lýkur við lok tímabilsins nema sérstaklega sé samið um áframhald. Þú þarft ekki að segja henni upp til að koma í veg fyrir endurnýjun.
Þrír mánuðir
Þú skuldbindur þig til þriggja mánaða þjónustu á lægra mánaðarverði, greiddrar með þremur mánaðarlegum kröfum. Mánaðarleg greiðsla breytir ekki því að samningurinn tekur til alls þriggja mánaða tímabilsins.
Ekki er heimilt að stytta tímabilið með venjulegri uppsögn. Þetta takmarkar þó ekki fráfallsrétt samkvæmt kafla 7, réttindi vegna vanefnda eða rétt til endurgreiðslu samkvæmt kafla 6.
Að þremur mánuðum loknum lýkur þjónustunni nema sérstaklega sé samið um áframhald.
Þjálfari hefur samband áður en hvort tímabil um sig rennur út og fer yfir framhaldið með þér. Þjónustan endurnýjast ekki sjálfkrafa. Nýtt tímabil og verð þess þurfa að vera sérstaklega samþykkt.
Áður en þjálfun hefst er farið yfir þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að meta hvort og hvernig hægt sé að veita þér þjónustuna með öruggum hætti.
Þú ert beðin eða beðinn um að svara spurningum um meiðsli, verki og heilsufar eftir bestu vitund. Sérstaks samþykkis er aflað áður en heilsufarsupplýsingar eru sendar inn og unnar, samkvæmt kafla 10.
Jákvæð svör við heilsufarsskimun fá einstaklingsbundna yfirferð þjálfara. Hann getur óskað eftir frekari upplýsingum eða ráðgjöf heilbrigðisstarfsmanns, þar á meðal læknisvottorði ef þörf er á, áður en æfingar hefjast. Einnig getur hann aðlagað fyrirhugaða þjálfun að þörfum þínum og öryggi.
Ef niðurstaðan er að þjálfun geti ekki hafist af öryggisástæðum fellur samningurinn niður. Þú færð þá allar greiðslur vegna hans endurgreiddar og ógreiddar kröfur vegna þjónustunnar eru felldar niður. Ekki er dregið frá fyrir undirbúning eða gerð áætlunar. Þetta gildir óháð því hvort 14 daga fráfallsfresturinn er liðinn.
Slík endurgreiðsla fer fram án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir að niðurstaðan liggur fyrir.
Þú skalt láta þjálfara vita um verulegar breytingar á heilsufari sem geta haft áhrif á þjálfunina. Ef þjónustusambandið stendur samfellt í eitt ár eða lengur er heilsufarsskimun endurtekin að minnsta kosti árlega.
Fylgdu leiðbeiningum um framkvæmd æfinga og leitaðu viðeigandi aðstoðar ef einkenni eða óþægindi gefa tilefni til. Þessi ákvæði fela ekki í sér undanþágu Þjálfun.is frá ábyrgð samkvæmt lögum.
Þú hefur rétt til að falla frá samningnum innan 14 daga frá samningsgerð án þess að tilgreina ástæðu. Rétturinn gildir bæði um stakan mánuð og þriggja mánaða tímabil.
Fresturinn miðast við samningsgerðina, ekki dagsetningu fyrstu kröfu, greiðslu eða afhendingar áætlunar. Um lögbundna framlengingu frests vegna skorts á upplýsingagjöf fer samkvæmt 17. gr. laga nr. 16/2016.
Til að nýta réttinn skaltu tilkynna Þjálfun.is ákvörðun þína með ótvíræðri yfirlýsingu. Þú getur sent tölvupóst á thjalfun@thjalfun.is eða bréf á póstfang seljanda í kafla 1. Þú mátt nota eyðublaðið aftast í þessum skilmálum, en það er ekki skylda.
Nægilegt er að tilkynningin sé send áður en fresturinn rennur út. Gott er að varðveita afrit hennar og upplýsingar um sendinguna.
Ef vinna er þegar hafin
Hafir þú sérstaklega óskað eftir að þjónustan hefjist áður en fráfallsfresturinn rennur út og fengið tilskildar upplýsingar fyrir kaup getur þú þurft að greiða fyrir þann hluta þjónustunnar sem hefur verið veittur þegar þú tilkynnir fráfall.
Greiðslan er reiknuð sem réttmætt hlutfall af heildarverði samningsins, miðað við umfang þeirrar þjónustu sem þegar hefur verið veitt samanborið við fulla efnd samningsins. Hún getur tekið til sannanlegrar undirbúningsvinnu við áætlunina, þótt fyrsta reglulega mánaðarkrafan hafi ekki enn verið send. Þú færð sundurliðun á útreikningnum.
Ekki er sjálfkrafa innheimtur heill mánuður, eftirstöðvar þriggja mánaða tímabils eða sérstakt uppsagnargjald vegna fráfalls. Ef heildarverðið er óhóflegt miðast greiðslan við markaðsvirði veittrar þjónustu.
Hafir þú ekki sérstaklega óskað eftir byrjun þjónustunnar innan fráfallsfrestsins, eða hafi skilyrði laga um upplýsingagjöf og greiðsluskyldu ekki verið uppfyllt, berðu ekki slíkan kostnað.
Afhending þjálfunaráætlunar ein og sér fellir ekki niður fráfallsréttinn. Samningurinn tekur einnig til þjónustu og eftirfylgni á keypta tímabilinu.
Endurgreiðsla og niðurfelling krafna
Þegar þú fellur frá samningi endurgreiðir Þjálfun.is greiðslur þínar án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir að tilkynning um fráfall berst. Við uppgjörið er aðeins tekið tillit til þeirrar hlutfallsgreiðslu sem heimil er samkvæmt framangreindu.
Endurgreitt er með sama greiðslumiðli og notaður var við kaupin nema þú samþykkir annað sérstaklega. Þú berð engan kostnað af endurgreiðslunni. Ógreiddar kröfur eru felldar niður eða leiðréttar í samræmi við uppgjörið.
Ákvæði kafla 6 um fulla endurgreiðslu af öryggisástæðum gengur framar heimild til hlutfallsgreiðslu í þessum kafla.
Ef veikindi, meiðsli eða aðrar sérstakar aðstæður koma upp eftir að þjálfun hefst skaltu hafa samband við þjálfara. Farið er yfir hvort aðlögun þjónustunnar, hlé eða annað samkomulag sé viðeigandi. Breytingar á tímabili eða greiðslum eru staðfestar skriflega.
Eftir að fráfallsfrestur er liðinn fæst þegar veitt og samningsbundin þjónusta almennt ekki endurgreidd eingöngu vegna þess að þú kýst að nýta hana ekki. Það takmarkar ekki réttindi þín vegna öryggisástæðna samkvæmt kafla 6, vanefnda seljanda eða annarra ófrávíkjanlegra lagaákvæða.
Sé þjónustan ekki veitt eins og samið var um skaltu tilkynna það Þjálfun.is svo unnt sé að bregðast við. Eftir eðli og alvarleika vanefndar getur þú átt rétt á úrbótum, afslætti, riftun, endurgreiðslu eða skaðabótum samkvæmt lögum og almennum reglum samningaréttar. Slík réttindi eru ekki háð frjálsu mati þjálfara.
Æfingaáætlanir, myndbönd, leiðbeiningar og annað höfundarréttarvarið efni sem veitt er með þjónustunni tilheyrir Þjálfun.is eða viðkomandi rétthöfum.
Efnið er ætlað til persónulegrar notkunar þinnar. Ekki má selja það áfram, birta opinberlega, dreifa því eða nota í atvinnuskyni án heimildar rétthafa.
Þetta takmarkar ekki lögmæta notkun efnisins, meðal annars nauðsynlega miðlun til heilbrigðisstarfsmanns vegna þjálfunar þinnar eða framlagningu gagna vegna kvörtunar eða ágreinings.
Kristján Jónsson / Þjálfun.is er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga vegna þjónustunnar.
Nafn, samskiptaupplýsingar og nauðsynlegar þjálfunarupplýsingar eru unnar vegna undirbúnings og framkvæmdar samningsins. Kennitala kaupanda er notuð til öruggrar persónugreiningar við kröfugerð, greiðslur og reikningagerð. Nauðsynlegum upplýsingum er miðlað til þeirra banka og þjónustuaðila sem annast þá framkvæmd. Bókhaldsgögn eru varðveitt samkvæmt lögbundnum skyldum.
Heilsufarsupplýsingar, þar á meðal upplýsingar um meiðsli, verki og svör við heilsufarsskimun, eru unnar á grundvelli sérstaks og afdráttarlauss samþykkis þíns í þeim tilgangi að aðlaga þjálfun að þörfum þínum og öryggi.
Samþykki þessara skilmála og ósk um tafarlausa byrjun þjónustu eru ekki samþykki fyrir vinnslu heilsufarsupplýsinga. Þess samþykkis er aflað sérstaklega áður en upplýsingarnar eru sendar inn.
Þú getur hafnað því að veita heilsufarsupplýsingar eða afturkallað samþykki þitt með því að hafa samband við thjalfun@thjalfun.is. Afturköllun hefur ekki áhrif á lögmæti vinnslu sem fór fram áður. Þjálfari fer þá með þér yfir hvort og hvernig unnt sé að halda þjónustunni áfram með öruggum hætti.
Kennitala og heilsufarsupplýsingar eru ekki notaðar til auglýsingamælinga. Heilsufarsupplýsingar eru ekki settar á greiðslukröfur.
Nánari upplýsingar um tilgang og lagagrundvöll vinnslu, viðtakendur, varðveislu, öryggi og réttindi þín eru í persónuverndarstefnu Þjálfun.is. Þú getur einnig lagt fram kvörtun til Persónuverndar.
Það verð og þeir skilmálar sem þú samþykkir við kaup gilda út keypta tímabilið. Mánaðarleg innheimta þriggja mánaða samnings heimilar ekki verðhækkun innan þess tímabils.
Ný verðskrá eða nýir skilmálar gilda um síðari kaup eða áframhald sem sérstaklega er samið um. Þú færð upplýsingar um þau kjör áður en þú samþykkir nýtt tímabil.
Breytingar á þegar gerðum samningi þurfa sérstakt samþykki beggja aðila, nema annað leiði af ófrávíkjanlegum lögum. Þögn eða áframhaldandi notkun ein og sér telst ekki samþykki fyrir nýju tímabili eða breyttum kjörum.
Kvörtunum vegna þjónustunnar skal beina til thjalfun@thjalfun.is. Lýstu því hvað fór úrskeiðis og hvaða úrlausnar þú óskar. Þjálfun.is fer yfir kvörtunina og svarar innan sanngjarns tíma.
Takist ekki að leysa ágreininginn getur þú leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa, að uppfylltum skilyrðum um málsmeðferð hjá nefndinni:
Einnig má beina ábendingum um viðskiptahætti eða brot á upplýsingaskyldu til Neytendastofu. Neytendastofa annast eftirlit en leysir ekki úr einstaklingsbundnum endurgreiðslu- eða skaðabótakröfum með sama hætti og kærunefnd eða dómstólar.
Um samninginn gilda íslensk lög. Aðilar geta borið ágreining undir þar til bæran dómstól samkvæmt gildandi reglum um lögsögu og varnarþing. Þessir skilmálar takmarka ekki lögbundnar kæruleiðir eða réttarvernd neytenda.
Fylltu út og sendu þessa yfirlýsingu aðeins ef þú óskar eftir að falla frá samningnum. Notkun eyðublaðsins er valfrjáls.
Til: Kristjáns Jónssonar / Þjálfun.is
Heimilisfang: Sporthúsið, Dalsmári 9–11, 201 Kópavogur
Netfang: thjalfun@thjalfun.is
Ég/við (*) tilkynni/tilkynnum (*) hér með að ég/við (*) óska/óskum (*) eftir að falla frá samningi mínum/okkar (*) um veitingu eftirfarandi þjónustu:
Þjónusta og keypt tímabil: ______________________________
Pantað hinn: ______________________________
Nafn neytanda/neytenda: ______________________________
Heimilisfang neytanda/neytenda: ______________________________
Undirritun neytanda/neytenda, aðeins ef eyðublaðið er sent á pappír: ______________________________
Dagsetning: ______________________________
(*) Strikið út það sem á ekki við.